sunnudagur, apríl 10, 2005

The Man And His Knee

YEAH!! Núna þegar tæpt ár er liðið síðan ég, með tilþrifum, rústað á mér hnénu í körfubollta...Hmm er ekki soldið kjánalegt að skemma á sér hnéð svona í jafn saklausri íþrótt og körfubollta þegar maður fer eins og villimaður á fleygiferð niður stórgríttar brekkur og stíga á 2hjóla reiðhjóli?...allavegana þá er kallinn á leið í speglun næstkomandi miðvikudag, hljómar saklaust en ég má sko ekki hreyfa mig í 2daga eftir þetta og ekki keyra bíl í 5 daga, ég meina það að ég geti ekki keyrt bíl í 5 daga er bara útúr kortinu, ég verð kominn með fráhvarfseinkenni á lokastigi á 3ja degi. En allavega síðan eftir þessa aðgerð mína eða 10 dögum síðar mun ég hitta bæklunarlækni minn (já ég er hjá bæklunarlækni :)) aftur og þá kemur í ljós hvað það var sem var skemmt og hvernig það tókst til að fixa það og væntanlega verð ég sendur til sjúkraþjálfara í kjölfarið af þessum fundi okkar.

Later,
"Hnémaðurinn" Oskar

5 ummæli:

Oskar Omarsson sagði...

Vá ég var að fatta kaldhæðnina í nafninu á bloggsíðunni minni núna :)

Nafnlaus sagði...

já, þið Maggi ættuð bara að sleppa því að spila körfubolta... Þið stórslasist bara á þessu.. ;)

Nafnlaus sagði...

Ég geri ráð fyrir að það sé verið að vísa til mín, enda þekkir Óskar ENGANN annan Magga, enda er ekki til neinn annar Maggi. En til Berglindar segi ég, hey, ég slasast aldrei í körfu :p en hvernig er það Óskar, getum við þá aldrei farið í miðnæturkröfu í sumar eins og við gerðum svo oft á árum áður?

Maggi

Oskar Omarsson sagði...

Jújú ég þekki annan magga, maggi minn :). En miðnæturkörfurnar verða að bíða í amk 3mánuði, eða allta sumarið!#$%%!$, eða jafnvel frammá næsta sumar :(, er að fara í sjúkraþjálfun útaf hnénu mínu og íþróttir og djöflagangur eins og körfubollti og hlaup verð ég að forðast eins og heitann eldinn :(.

Nafnlaus sagði...

Arggggg við báðum hlutum, verð að afskrifa þennan "hinn" Magga, og svo laga hnéð þitt hratt svo að karfan geti orðið aftur.